Spock, beem me up

SpotHooters&PrikBoozzom

24.09.2008 13:49:02 / hooters&boozzom

Blogetí blogg

Ég sit hér heima og er veik. Ég ætti að vera að kynna mér árás Susan Sontag á Deborde og Baudrillard en nenni því engan veginn. Hugurinn er bara ekki á réttum stað, og vill frekar flakka eitthvað annað.
Ég var á Seyðisfirði síðustu vikuna að vinna og fór svo í brúðkaup á laugardeginum. Yndislegt brúðkaup sem ég naut þó ekki að fullnustu sökum þreytu og slappleika. Sumum þóttu þó merkilegt að ég væri staðsett þarna "Who would have thought you would show up in non-alcoholic wedding?" var sagt við mig. Helgin í firðinum fagra var þó tekin edrú sem var eigilega bara fínt. Ekki verður hægt að segja það sama um þá næstu þar sem fyrsta vísindaferð vetrarins verður á föstudaginn og svo halda Katla og Karen afmælin sín hátíðleg á laugardaginn.
Ég hef mikið verið að pæla hvernig líf mitt væri í dag ef ég hefði aldrei farið á Seyðisfjörð fyrir tveim árum. Fyrir tveim árum var ég nýkomin heim frá Tenerife, stödd á Seyðisfirði án þess að þekkja nokkurn. Og ég þrjóskaðist til að vera þar í heilt ár. Og afleiðingar þessa árs eru held ég meiri en nokkurn skyldi gruna. Ég hefði líklegast lifað frekar breytingalausu lífi hér í Reykjavík hefði ég ekki farið. Unnið á leiksskóla og þótt það líklegast leiðinlegt, enda ekki minn tebolli að mæta í vinnuna á hverjum degi klukkan átta eða níu. Þá hefði ég líka ekki kynnst stelpunum mínum fyrir austan. Grettan hefði aldrei orðið til og leitin að Bóbó hafði aldrei orðið. Ég hefði þá aldrei flutt að heiman, og fundið í raun sjálfa mig. Aldrei lært að elda og væri líklegast enn matvönd frá helvíti. Hefði ég að vísu ekki farið hefði ég sloppið við hina ýmsu dramatík sem fylgir þessum stað, En í dag lít ég bara á það sem fórnarkostnað sem gerir mig sterkari fyrir vikið. Svo má ekki gleyma því að án Seyðisfjarðar hefði ég líklegast ekki kynnst henni Ingunni minni og skólinn í fyrra hefði þá verið óbæranlegur. Þrátt fyrir að fáir skilji mig, og þá aðalega þeir sem eru ekki frá austurhorni landsins, þá held ég eftirá litið, að sú örlagaríka ákvörðun mín að fara til Seyðisfjarðar fyrir tveim árum hafi bara verið góð.

ooog þá er það lærdómurinn aftur.
-PrikBoozzom

Halla Dröfn skrifaði
Hæ og takk fyrir síðast! Já Seyðis gerir ótrúlega hluti fyrir borgarskvísur eins og okkur!
Go Seyðis,
hilsen að austan,
Halla
Sonja skrifaði
Vá væmin geturu verið! gubb gubb!!! ;)
Einar skrifaði
Verð að vera sammála Sonju hérna...
Margrét skrifaði
um leið og þú hafðir góð áhrif á mig, hafði ég og aðrir góð áhrif á þig:) lvjú:*
gulla skrifaði
:D
Sunna Bjork skrifaði
Já, og tad er ekki minnst á mig med einu einasta ordi, ég sem skapadi tig úr rifbeini mínu!

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Könnun
Bíður þú í röð eftir pylsu hjá Bæjarins Bestu?