02.08.2008 23:05:04 / hooters&boozzom
Þá er komið að því:
Færeyjar 2008 lokið. Of gaman! Einsog staðan er í dag er stefnt aftur á næsta ári! Jón Emil tók höfðinglega á móti okkur og sá til þess að við værum ekki bara að éta eitthvað ógeðisfæði. Margrét borðaði þó ekki nógu mikið af pylsum, og Þórunn átti í mesta basli með að bjóða í matarboðið sitt. Telma var hrifin af mini-bar, og ég bara af hótelherbergi.
En það sem er næst á dagskrá er Reykjavíkurferð mín næstu helgi, og þeir sem vilja hitta mig eru vinsamlegast beðnir um að panta tíma tímalega. Færri komast að en vilja. Ég kem líklegast á fimmtudagskvöldi og fer á sunnudagskvöldi. Laugardagurinn er þó þegar upppantaður.
-PrikBoozzom