Spock, beem me up

SpotHooters&PrikBoozzom

10.06.2008 03:54:41 / hooters&boozzom

Bílasögur:

Ég og Græni-Goran eigum okkur þrjár afdrífaríkar sögur:

1: Það var sólríkur fimmtudagur í nóvember, klukkan var um fjögurleytið og ég skutlaði Ingunni í vinnuna á Laugarveginum. Þegar ég er búin að henda henni í vinnuna keyrði ég niður Laugarveginn og þegar ég kem fyrir utan Skarthúsið og BÚMM ég klessti aftan á kyrrstæðan jeppa. Græni-Goran var kyrrsettur í fimm mánuði, og ný hraðahindrun var komið uppá aðalverzlunargötu Íslands þar sem hámarkshraði er 30 km.

2: Það var virkur dagur núna í maí og ég og Telma ætluðum á Egilstaði í verzlunarferð strax eftir vinnu og fórum því á bílnum í vinnuna. Eftir vinnu fundum við hinsvegar ekki lyklana, og lögðum spítalann á hvolf við að leita að þeim. Eftir að hafa uppgvötvað að ekki voru lyklarnir einungis týndir heldur taskan mín líka (líklegast á sama stað og lyklarnir) ákváðum við að fá okkur öl á Öldunni og segja gestum og gangandi frá ömurlegheitum dagsins. Bæjarbúar Seyðisfjarðar höfðu miklar áhyggjur af þessu og einhvern veginn var það fundið út (af okkur Telmu að vísu) að einhver hefði tekið töskuna og lyklana og ætlað að láta til skara skríða seinna meir og taka þá bílinn. Við vorum einatt hvattar til að fara til lögreglunnar með málið sem við og gerðum. Við hjóluðum niður á löggustöð og gáfum skýrslu, tilkynntum allt sem stolið hafði verið af okkur. Nokkrum tímum síðar, þegar við erum á leiðinni á sjúkrahúsið til að biðja konurnar á vakt að vakta bílinn, rann það upp fyrir mér að taskan væri uppí býtibúri og lyklarnir líka. Þá þurfti ég að hringja í lögregluna og láta vita að við hefðum fundið draslið okkar. Flott.
3: Ég, Telma, Katla og Milton komum keyrandi á fyrrnefndum bíl hingað á Seyðisfjörð síðastliðinn laugardag. Annað framdekkið lak, og vorum við dugleg að pumpa í það á leiðinni því veðrið var horbjóður og við nenntum ekki að skipta um dekk. Í grenjandi rigningu, 30 km fyrir utan Djúpavog sprakk svo á hinu framdekkinu, sem þýddi aðeins eitt: Tvö dekk loftlaus í einu. Eftir nokkrar hringingar komumst við svo að því að Bótardjöfulinn er hægt að nota í margt annað en bjórkaup á barnum þar sem hann reddaði okkur manni og dekki, og eftir tveggja tíma seinkunn komumst við aftur á skrið. Ferðin á Seyðisfjörð tók okkur aðeins tólf tíma.

http://lh3.ggpht.com/heidurdogg/RqZUf2W5sgI/AAAAAAAAAKw/0zwRIG9qsc8/Myndirnar%20530.jpg?imgmax=512
Umræddur bíll.


-PrikBoozzom, sem er ekki mikið fyrir bíla

Eva Jóa skrifaði
hahahaha... mannstu þegar við sprengdum dekkið á bíl vinkonu frænku minnar á kömbunum?

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Könnun
Bíður þú í röð eftir pylsu hjá Bæjarins Bestu?