Spock, beem me up

SpotHooters&PrikBoozzom

08.11.2008 21:18:27 / hooters&boozzom

Lördag

En sá dauði og djöfull að fara að vinna klukkan átta á laugardagsmorgnum! Nú er ég ekki sérlega mikil morgunmanneskja, og hvað þá um helgar. Ekki bætti heldur úr skák að Heiður lét mig vaka fram eftir til að bonda við Þórð, en hann er ekki alveg sáttur við mig. Ég tók mig nefnilega til á fimmtudaginn og gúglaði drenginn. Þar komst ég að mörgu skemmtilegu. Hann til dæmis vann verðlaun fyrir sérlega góðan árangur í heimilisfræði, og gerði fínpússaði átta blaðsíðna ritgerð um frumulíffræði. Þetta gerði hann bara þegar hann var í tíunda bekk í Ölduselsskóla. Hann er að gera garðinn frægann núna í golfinu, en á tíma stundaði hann knattspyrnu með ÍR. Kannski ekki skrítið að hann hafi lagt það upp á bátinn. Svo er hann ekki með góðan kvikmyndasmekk; hann er sérlegur aðdáandi Matrix en Glitter er ekki hans tebolli! Hvað er það? Þökk sé Glitter fékk ég átta á hinu virðulega ensku samrændaprófi!

Það er klárt mál að þennan dreng þarf að ala betur upp!


Svo má ekki gleyma tíunda bekkjar myndinni sem ég gróf upp af kappanum, en Heiður vill ekki að myndin verði birt af persónulegum sökum...

-PrikBoozzom, meistari google!


p.s. Þeir sem vilja fræðast meira um afrek Þórðar í golfinu fari vinsamlegast á google.com og leiti að Þórður Rafn

ella skrifaði
flott mynd, búin að setja hana sem desktop background
Sonja skrifaði
Ég er sjúk í tíundubekkjarmyndina..... Annars er Matrix sko alveg góð mynd!!! GO ÞÓRÐUR
Sonja skrifaði
Ég er sjúk í tíundubekkjarmyndina..... Annars er Matrix sko alveg góð mynd!!! GO ÞÓRÐUR
Sonja skrifaði
Sko þetta er alveg með ólíkindum þessi tvö komment þarna að ofan.... með tveggja tíma millimili... klárlega stóð ég ekki fyrir þessu! Lá sko ekki svona á hjarta mínu að koma þessu frá mér ;)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Könnun
Bíður þú í röð eftir pylsu hjá Bæjarins Bestu?